Persónuupplýsingar
Þegar bókað er hjá okkur fáum við nafn, símanúmer, netfang og kennitölu ásamt upplýsingum um bíl og ferðalög. Þessar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að þjónusta þig sem viðskiptavin. Allar upplýsingar sem snúa að greiðslu fara í gegnum Valitor og vefsíða Base Parking vinnur ekki beint með þær upplýsingar.
Ábyrgðarmál
Bílar njóta töluverðs öryggis þar sem lágmarkshætta er á tjóni inn á bílaplaninu okkar. Engar kerrur eru þar til staðar og engir viðskiptavinir í flýting til þess að reka hurð í næsta bíl. Ef sannanlegt tjón verður á bíl meðan bíllinn er undir stjórn starfsmanns Base Parking þá greiðir Base Parking því sem nemur sjálfsábyrgð á kaskó tryggingu bílsins.
Komi upp bilun í bifreið sem er í umsjá Base Parking, sem rekja má til eðlilegra kringumstæða, ber Base Parking enga ábyrgð á því tjóni. Dæmi um þetta gæti verið slitin tímareim eða önnur eðlileg slit á eldri bíl. Ef starfsmenn Base Parking verða uppvísir um vítavert gáleysi sem veldur bilun í bíl ber Base Parking ábyrgð á því tjóni.
Endurgreiðslur
Endurgreitt er að fullu ef afbókað er 24 klst fyrir brottför. Ef það er minna en sólarhringur í ferðina þegar pantað er þá fæst þjónustan ekki endurgreidd.
Lög og varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Base Capital ehf á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.